Bókaðu kjól fyrir þinn viðburð
Skoða núna
Nýtt
-
Krystelle - Oh Polly
Regular price 8,900 ISKRegular priceUnit price / perSale price 8,900 ISK -
Lily Bloom Black - Needle & Thread
Regular price 17,900 ISKRegular priceUnit price / perSale price 17,900 ISK -
Maya Brown - Asta Resort
Regular price 10,000 ISKRegular priceUnit price / perSale price 10,000 ISK -
Carolina Brown Set - Asta Resort
Regular price 10,000 ISKRegular priceUnit price / perSale price 10,000 ISK
Hópabókun
Við bjóðum upp á mátun fyrir vinkonuhópa!
Þú getur bókað í gegnum Noona eða í síma 789-0903
Algengar spurningar
Hvernig virkar mátun hjá ykkur?
Þú getur bókað þér tíma í mátun hjá okkur í gegnum Noona. Það kostar ekkert að koma í mátun.
Verslunin okkar er staðsett á Grensásvegi 1A, 108 Reykjavík og PARKA-bílakjallari er beint fyrir neðan verslunina.
Hvernig virkar leigan?
Þú velur daginn sem þú ætlar að nota kjólinn og daginn sem þú skilar honum. Ef kjóllinn er laus daginn áður er yfirleitt hægt að sækja hann þá, annars er hann sóttur samdægurs. Eftir helgar er skilað á mánudegi.
Þú færð SMS daginn áður með öllum upplýsingum varðandi afhendingu og skil.
Sendið þið út á land?
Já. Við sendum um allt land með Dropp. Ekki er hægt að ganga frá bókun fyrir sendingu í gegnum heimasíðuna, heldur þarftu að hafa samband við okkur í skilaboðum eða í síma 789-0903 til að bóka.
Við sendum kjólinn til þín og skilamiði fylgir með svo þú getir auðveldlega sent hann aftur til okkar eftir leigu.
Hvenær þarf að skila kjólnum?
Kjólnum er skilað næsta dag eftir leigu. Ef kjóll er leigður á föstudegi eða laugardegi er honum yfirleitt skilað á mánudegi.
Þú færð SMS daginn áður með öllum upplýsingum varðandi afhendingu og skil.
Get ég mátað áður en ég bóka?
Já. Þú getur bókað þér tíma í mátun hjá okkur í gegnum Noona áður en þú gengur frá bókun. Það kostar ekkert að koma í mátun.
Get ég afbókað leiguna?
Já. Ef afbókað er með meira en 48 klst. fyrirvara færðu fulla endurgreiðslu. Ef afbókað er innan 48 klst. færðu inneign hjá okkur sem rennur ekki út og þú getur nýtt hvenær sem er.
Hvað gerist ef kjóllinn skemmist?
Við bjóðum upp á valfrjálst tryggingagjald að upphæð 1.950 kr. við bókun. Tryggingin nær yfir minniháttar óhöpp sem hægt er að laga, t.d. bletti eða saumsprettur.
Ef trygging er ekki valin ber leigutaki ábyrgð á kostnaði vegna viðgerða, bletta eða skemmda. Tryggingin nær ekki yfir varanlegar skemmdir sem ekki er hægt að laga.
Ef kjóll skemmist það mikið að ekki er hægt að gera við hann eða leigja hann út aftur, ber leigutaka að greiða kostnaðarverð kjólsins við innflutning.
Skráðu þig á póstlistann
Bara það sem er mikilvægt, nýjar sendingar og afslættir!
Um okkur
Kjólaleiga var stofnuð árið 2023 með það markmið að gera það auðvelt að finna fallegan kjól fyrir öll tilefni án þess að kaupa nýjan í hvert skipti.
Við veljum einstaka kjóla frá hönnuðum víða um heim, með áherslu á gæði, fallega hönnun og sjálfbærni. Hvort sem þú ert á leið í afmæli, árshátíð, útskrift eða annað sérstakt tilefni hjálpum við þér að finna kjól sem þér líður vel í.
Við hlökkum til að taka á móti þér á Grensásvegi 1A!
Upplifun viðskiptavina
- Choosing a selection results in a full page refresh.
- Opens in a new window.
