Algengar spurningar

Hvernig virkar mátun hjá ykkur?

Þú getur bókað þér tíma í mátun hjá okkur í gegnum Noona. Það kostar ekkert að koma í mátun.

Verslunin okkar er staðsett á Grensásvegi 1A, 108 Reykjavík og PARKA-bílakjallari er beint fyrir neðan verslunina.

Hvernig virkar leigan?

Þú velur daginn sem þú ætlar að nota kjólinn og skiladag þegar þú bókar. Ef kjóllinn er laus daginn áður er yfirleitt hægt að sækja hann þá, annars er hann sóttur samdægurs.

Þú færð SMS daginn áður með öllum upplýsingum varðandi afhendingu og skil.

Hvenær þarf að skila kjólnum?

Kjólnum er skilað næsta dag eftir leigu. Ef kjóll er leigður á föstudegi eða laugardegi er honum yfirleitt skilað á mánudegi.

Nákvæmar upplýsingar um skil koma fram í SMS-i sem þú færð daginn áður. 🤍

Sendið þið út á land?

Já. Við sendum um allt land með Dropp. Ekki er hægt að bóka sendingu í gegnum heimasíðuna, heldur þarftu að hafa samband við okkur í skilaboðum eða í síma 789-0903 til að ganga frá bókun.

Skilamiði fylgir með sendingunni svo þú getir auðveldlega sent kjólinn aftur til okkar eftir leigu.

Get ég afbókað leiguna?

Já. Ef afbókað er með meira en 48 klst. fyrirvara færðu fulla endurgreiðslu.

Ef afbókað er innan 48 klst. færðu inneign hjá okkur sem rennur ekki út og þú getur nýtt hvenær sem er.

Hvað gerist ef kjóllinn skemmist?

Við bjóðum upp á valfrjálst tryggingagjald að upphæð 1.950 kr. við bókun. Tryggingin nær yfir minniháttar óhöpp sem hægt er að laga, t.d. bletti eða saumsprettur.

Ef trygging er ekki valin ber leigutaki ábyrgð á kostnaði vegna viðgerða, bletta eða skemmda. Tryggingin nær ekki yfir varanlegar skemmdir sem ekki er hægt að laga.

Ef kjóll skemmist það mikið að ekki er hægt að gera við hann eða leigja hann út aftur, ber leigutaka að greiða kostnaðarverð kjólsins við innflutning.

Bóka mátun

Þú getur bókað tíma í mátun fyrir þig og vinkonuhópinn í gegnum Noona.is. Það kostar ekkert að koma í mátun.

Verslunin okkar er staðsett á Grensásvegi 1A, 108 Reykjavík. PARKA-bílakjallari er beint fyrir neðan verslunina.

Skoða lausa tíma