UM OKKUR
Kjólaleiga var stofnuð 1. febrúar 2023 með það að markmiði að bjóða upp á fjölbreytt úrval af fallegum og vönduðum kjólum. Eigandi leggur mikla áherslu á að styðja ekki hraðtísku og velur þess í stað kjóla sem eru einstakir, ekki víða aðgengilegir og með áherslu á gæði og vandaða hönnun.
Við bjóðum upp á sérsaumaða kjóla og kjóla frá vönduðum merkjum í eigu kvenna. Með því að leigja kjól stuðlum við jafnframt að sjálfbærri neyslu og betri nýtingu.
Við leggjum ríka áherslu á að veita persónulega þjónustu og skapa jákvæða upplifun fyrir hvern viðskiptavin sem kemur til okkar. Við hjálpum þér að finna hinn fullkomna kjól fyrir þinn viðburð, hvort sem það er brúðkaup, árshátíð, útskrift eða annað sérstakt tilefni, í skemmtilegu og notalegu umhverfi. Okkur þykir bæði gefandi og skemmtilegt að aðstoða við að finna kjólinn sem hentar þér best.
Við hlökkum til að taka á móti þér á Grensásvegi 1A.